The photo gallery requires at least Flash 9.0.28!
Please install the current FlashPlayer.
The photo gallery requires at least Flash 9.0.28!
Please install the current FlashPlayer.
Sýning Leirlistafélags Íslands Leir-andi stendur nú yfir í stóra salnum á Korpúlfsstöðum. Sýningin er haldin í tilefni 30 ára afmælis félafsins, á sýningunni eru verk eftir 13 félafsmenn, þeir eru:
• Anna Sigríður Hróðmarsdóttir • Hafdís Brands
• Helga Birgisdóttir • Hrefna Harðardóttir
• Inga Elín Kristinsdóttir • Jóhanna K. Óskarsdóttir
• Jóna Thors • Kolbrún Sigurðardóttir
• Margrét Árnadóttir • Margrét Jónsdóttir
• Steinunn Marteinsdóttir • Svafa Björg Einarsdóttir
• Unnur S. Gröndal.
Sýningunni lýkur sunnudaginn 11. des
Ólöf Erla sýnir á
Skörinni
Dags. júní 23, 2011
Ólöf Erla Bjarnadóttir leirlistakona opnar sýninguna Rósótt og köflótt á Skörinni, Aðalstræti 10, fimmtudaginn 23. júní kl 16.00. Ólöf Erla sýnir nýja kökudiska á fæti úr postulíni.
Annars vegar eru diskarnir skreyttir með rósum og eru óður til þeirra kvenna sem hafa lagt metnað sinn í að skreyta hinar ýmsu rjómatertur og hnallþórur gegnum tíðina. Diskarnir eru fagurlega skreyttir og því óþarfi að skreyta terturnar sem á þá fara. Hins vegar eru köflóttir diskar sem vísa meira í hvunndagsbrauð 20. aldar s.s. kleinur, randalínur og flatbrauð. Sýningin opnar á morgun og stendur til 14. júlí.
Opið: Alla virka daga kl. 9 – 20, laugardaga kl. 10 – 17 og sunnudaga kl. 12 – 17
Með fyrirfram þökk,
Fjóla Guðmundsdóttir